Takk fyrir innlitið vertu velkominn

Ég heiti Amina Ástrós Askari



Þann 8.júni kl 20:10 spyrnti þessi unga dama sér út í heiminn í einni tilraun.(ekkert verið að kíkja og snúa sér) Hún var 17 merkur og 54 cm með mikið hár og það sem leit út fyrir að vera dökk grá augu sem svo þróuðust út í að vera blá og svo núna í dag er hún með brún og græn augu eftir stöðu sjáaldrana.

Samkvæmt stjörnukortinu hennar er hún Tvíburi með tungl í fiskum og rísandi sporðdreki. Merkur (hugsun) í krabba. Venus í ljóni.

Grunneðli og lífsorka
Félagslynd, sveigjanleg og fjölhæf.
Þarf hreyfingu og ólík verkefni til að viðhalda
lífsorku, m.a. miðlun og margs konar pælingar.

(Sól í Tvíbura) Í 7. húsi: Styrkir lífsorkuna
með því að fást við félagsmál og samstarfsverkefni,
t.d. kennslu, ráðgjöf eða stjórnun.

Tilfinningar og heimili

Næm og viðkvæm, með sterkt ímyndunarafl.
Þarf sveigjanleika í sambandi við heimili og lífsstíl.
Skapandi og óútreiknanleg.

(Tungl í Fiskum) Í 3. húsi: Líður best tilfinningalega þegar
mikið er um að vera, m.a. pælingar, miðlun og
tjáskipti. 'Fjölmiðlamaður'.

Hugsun:
Næm, með sterkt ímyndunarafl.
Myndræn hugsun, innsæi og 'nef' fyrir því hvað er rétt
og rangt. Tilfinningarík í máltjáningu.

(Merkúr í Krabba) Í 8. húsi: Náin samstarfsverkefni,
tengd viðskiptum og fjármálum, og pælingar um
sálfræði samskipta og mannlegt eðli vekja áhuga og
skerpa hugann.

Ást og samskipti:
Vill lífleg, skapandi og hlý samskipti.
Laðast að fólki sem er skemmtilegt og hugmyndaríkt.
Stolt, föst fyrir og trygglynd.

(Venus í Ljóni) Í 8. húsi: Sterk útgeislun, áhugi á
félagsmálum, laðar aðra að sér.
Sérstakir hæfileikar til að ná til annarra og hrífa fólk með sér.

Framkoma:
Dul, felur innri mann sinni. Föst fyrir og
ákveðin. Næm, sér í gegnum 'yfirborðið'. Á
til að vera hvöss og 'beitt' í framgöngu.
(Rísandi í Sporðdreka)

Markmið og ímynd:
Leggur áherslu á að vera dugleg,
gera hluti vel og ná árangri.
Viss fullkomnunarþörf í tengslum við markmið og starf. (Miðhiminn í Meyju)

Framkvæmdir:
Kappsfull, snögg og ákveðin.
Þarf að vera líkamlega athafnasöm
og takast reglulega á við nýjar áskoranir.
Sjálfstæð og beinskeytt.

(Mars í Hrúti) Í 5. húsi: Lífleg og kraftmikil
sjálfstjáning. Vinna þarf að vera skemmtileg og
skapandi. Hefur gaman af því að taka áhættu.

Viðhorf og tækifæri:
Trúir á frelsi og er frjálslynd í viðhorfum til
lífsins og tilverunnar.
Það færir henni gæfu að ferðast og leita þekkingar.
(Júpíter í Bogmanni) Í 1. húsi: Oft opinská, hress og jákvæð í
framkomu. Hefur áhuga á ferðalögum og þekkingarleit.

Lærdómur og agi:
Prófraunir í lífi hennar tengjast
sjálfstjáningu, sjálfsaga, skapandi
verkefnum og stjórnun.
(Satúrnus í Ljóni) Í 9. húsi: Þarf að takast á við erfið verkefni eða axla ábyrgð í tengslum við ferðamál, erlend lönd og æðri
menntun. Alvörugefin í viðhorfum til heimsins.

Nýjungar:
Tilheyrir kynslóð sem skapar byltingu í
listum, læknisfræði og viðhorfum til
trúmála.
(Úranus í Fiskum) Í 3. húsi:
Sérstök og frumleg hugsun. Sjálfstæði í skoðunum og
hvað varðar nám. Tjáir sig á einstakan hátt.

Hugsjónir:
Tilheyrir kynslóð sem dáir tækni, vísindi og
hópsamstarf.
(Neptúnus í Vatnsbera) Í 3.húsi: Listræn hugsun, sköpunargáfa,víðsýni, draumlyndi, utanvið sig, eða a.m.k. sterkt ímyndunarafl.

Umbreyting:
Tilheyrir kynslóð sem stendur fyrir
hreinsunum og umskiptum í ferðamálum,
íþróttum, trúmálum og siðfræði.
(Plútó í Bogmanni) Í 1. húsi: Sterk þörf fyrir að umbreyta
persónuleikanum og hreinsa burt veikleika og
hindranir. Dramatísk og einbeitt framkoma